01/11/2023

Gefðu starfsfólkinu þínu upplifun alla daga í jólagjöf

Geir Ulrich Skaftason, verslunarstjóri Origo.

Það getur verið snúið að finna réttu jólagjöfina fyrir starfsfólkið þitt, eitthvað sem öll hljóta góðs af og geta notið. Val um upplifanir hafa verið vinsælar gjafir undanfarið en hvernig væri að gefa upplifun sem nýtist alla daga, allt árið um kring?

Upplifun á gæða hljóði úr heyrnatólum og hátölurum eða að geta notið dagsins og náð einbeitingu án truflunar umhverfishljóða með frábærri tækni hljóðdempunar (Noise Cancelling) er gjöf í hörðum pakka sem heldur áfram að gefa.

„Í verslun Origo má finna gott úrval og nýjustu tækni frá vörumerkjum eins og Bose, Lenovo, Apple, Sony og Canon. Origo leggur áherslu á að selja endingargóðan búnað sem nýtist til framtíðar, okkur er umhugað um umhverfið og eru margar vörur kolefnisjafnaðar frá framleiðendum vörumerkjanna. Við erum með skýr sjálfbærnismarkmið á hverju ári, þar á meðal að gefa gömlum tækjum aukalíf og þannig geta fyrirtæki og einstaklingar valið umhverfisvænni kosti við val á jólagjöfum.“ – Geir Ulrich Skaftason, verslunarstjóri Origo.

 

Gefðu gamla tækinu aukalíf

Þú getur komið til okkar með gömul tæki óháð framleiðanda og jafnvel fengið inneign í verslun Origo í staðinn. Við sjáum síðan um að endurnýja, endurvinna eða farga gamla tækinu á umhverfisvænan hátt. Hægt er að reikna út verðgildi gamalla tækja á sjálfbærnissíðu Origo.

Vinsælar fyrirtækjagjafir

Við höfum tekið saman vinsælar fyrirtækja jólagjafir sem veita upplifun alla daga og geta nýst vel til framtíðar.

Bose QC Ultra Headphones
Bose QC Ultra HeadphonesBose QC Ultra Headphones

Bose SoundLink Flex Bluetooth hátalari
Bose SoundLink Flex BT hátalariBose SoundLink Flex BT hátalari

AudioTechnica plötuspilari LPW30 með Teak viðaráferð
AudioTechnica plötuspilari LPW30 með Teak viðaráferðAudioTechnica plötuspilari LPW30 með Teak viðaráferð

Sony Bluetooth heyrnartól WHCH720 Noise Cancel
Sony Bluetooth heyrnartól WHCH720 Noise Cancel Sony Bluetooth heyrnartól WHCH720 Noise Cancel

Apple Airpods Pro (2nd Generation) þráðlaus heyrnartól
Apple Airpods Pro (2nd Generation) þráðlaus heyrnartólApple Airpods Pro (2nd Generation) þráðlaus heyrnartól

Bose SoundLink Micro Bluetooth hátalari
Bose SoundLink Micro Bluetooth hátalari Bose SoundLink Micro Bluetooth hátalari

Apple iPad 10,2" spjaldtölva 64GB
Apple iPad 10,2" spjaldtölva 64GBApple iPad 10,2" spjaldtölva 64GB

Bose SoundLink Revolve Plus II Bluetooth hátalari
Bose SoundLink Revolve Plus II Bluetooth hátalariBose SoundLink Revolve Plus II Bluetooth hátalari

„Við í verslun Origo erum búin að fá margar nýjar spennandi vörur upp á síðkastið sem eru framúrskarandi í hljóðgæði og hljóðvist, tali og hljóðdempun, þægindi og hönnun. Þar má nefna nýju heyrartólin frá Bose - QC Ultra Headphones sem eru með byltingarkenndri hljóðdempun, óviðjafnanlegum þægindum og hlaðin nýrri tækni.“

„Þetta eru heyrnartól sem heilla alla upp úr skónum! Hljóðdempunin veitir svo mikla hvíld frá hávaðnum í kringum mann og nýja Spatial Audio tæknin veitir upplifun á hljóði sem ég hef aldrei heyrt áður. Til viðbótar er hljóðið líka með eindæmum vandað. Þarna ertu með vöru sem hentar vel í einkalífinu og á vinnustaðnum og er því tilvalin jólagjöf.“ Segir Óskar Páll vörustjóri Bose á Íslandi.

„Bluetooth hátalarar eru einnig gríðarlega vinsæl gjöf sem hentar öllum og hittir alltaf í mark. Þar eigum við frábært úrval í öllum verðflokkum. Bose Soundlink Flex hátalarinn er til dæmis með mjög vinsæll, enda frábær, kraftmikil og nett græja!“