10/03/2025

Brynjólfur Einar ráðinn framkvæmdarstjóri fjármála hjá Origo

Brynjólfur Einar hefur verið ráðinn sem framkvæmdarstjóri fjármála hjá Origo.

Brynjólfur Einar

Origo hefur ráðið Brynjólf Einar Sigmarsson sem framkvæmdarstjóra fjármála hjá Origo og hefur hann þegar hafið störf.  

Brynjólfur hóf störf hjá Origo í október 2011 og hefur á þeim tíma sinnt fjölbreyttum störfum innan fjármálasviðs félagsins. Brynjólfur starfaði fyrst sem sérfræðingur í hagdeild áður en að hann tók við starfi innkaupastjóra. Síðustu ár hefur Brynjólfur leitt reikningshald félagins sem forstöðumaður. 

Brynjólfur lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann er einnig með M.Sc gráðu í Fjármálum og stefnumótun frá Copenhagen Business School og M.Sc. gráðu í hagfræði frá Kaupmannarhafnarháskóla. 

Eftir að hafa starfað í fjölbreyttum störfum innan félagsins undanfarin 13 ár er ég þakklátur því traustið sem mér er sýnt að fá að leiða fjármál Origo og tengdra félaga.

Brynjólfur Einar Sigmarsson

Framkvæmdarstjóri fjármála

Þetta er spennandi tími til að stíga inn í framkvæmdarstjórn, taka þátt í sókninni sem er framundan og halda áfram að sinna fjölbreyttum verkefnum með því reynslumikla og trausta teymi sem starfar á fjármálasviði, segir Brynjólfur Einar.

Mannauður er mikilvægasta eign fyrirtækja í okkar geira og það er frábært að sjá lykilfólk okkar vaxa og dafna í starfi og takast á við aukna ábyrgð og ný hlutverk. Brynjólfur stígur inn í hlutverk fjármálastjóra á tíma mikilla umbreytinga í rekstri Origo og tengdra félaga og leiðir m.a. fjármál Skyggnis Eignarhaldsfélags, sem tók til starfa í nóvember síðastliðnum

Ari Daníelsson

Forstjóri Origo

Deila frétt