26/03/2025

Helgi nýr sölustjóri hjá Origo

Helgi Björgvinsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri hjá Origo og hefur hann nú þegar hafið störf. Helgi hefur starfað í upplýsingatækni í tæpa þrjá áratugi og starfaði áður fyrr hjá Origo sem viðskiptastjóri.

Helgi Björgvinsson, sölustjóri Origo

Helgi hefur starfað í upplýsingatækni með einum og öðrum hætti í tæplega þrjá áratugi. Undanfarin 7 ár hefur hann starfað sem forstöðumaður yfir sölu á hugbúnaðarlausnum hjá Advania og fyrir það starfaði hann sem viðskiptastjóri hjá Origo. 

Helgi er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Eftir tæp sjö ár utan Origo er gott að koma aftur heim. Margt hefur breyst á sjö árum en það sem stendur upp úr er sú mikla gerjun sem er að eiga sér stað, mikil tækifæri og öflugt fólk sem brennur fyrir tækifærunum. Hér er allt á fullri ferð og ég hlakka til leggja mitt af mörkum

Helgi Björgvinsson

Sölustjóri Origo

„Ég er glöð að fá Helga í þetta lykilhlutverk í nýju, samræmdu sölu- og markaðssviði. Helgi hefur bæði djúpan skilning á veruleika íslenskra fyrirtækja og yfirgripsmikla tækniþekkingu, sem skapar sterkan grunn fyrir árangur“, segir Lóa Bára Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Origo.

Deila frétt