10/03/2024
Origo gerist aðalstyrktaraðili Landsbjargar
Slysavarnafélagið Landsbjörg og Origo hafa gert samstarfssamning þar sem Origo gengur í hóp aðalstyrktaraðila Landsbjargar.

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Origo hafa gert samstarfssamning þar sem Origo gengur í hóp aðalstyrktaraðila Landsbjargar.
Sjálfboðaliðastarf Slysavarnafélagsins Landsbjargar stendur og fellur með stuðningi þjóðarinnar. Það er því afar ánægjulegt þegar stór og öflug fyrirtæki eins og Origo viðurkenna mikilvægi þessa starfs og stígi það stóra skref að styðja myndarlega við sjálfboðaliða okkar.
Kristján Þór Harðarson
•
Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjörg
Finnum leiðina: Samstarf okkar skapar öryggi
Yfirskrift samstarfsins er „Finnum leiðina: Samstarf okkar skapar öryggi“ og sérstök áhersla verður lögð á stuðning við Landsbjörg í upplýsingatækni og netöryggismálum. Starfsemi Origo byggir á trausti og áreiðanleika og það er það markmið fyrirtækisins að vera í framvarðasveit þeirra þjónustuaðila á íslenskum markaði sem stuðla að öruggu rekstrarumhverfi og þjónustu, bæði gagnvart eigin innviðum og fyrir viðskiptavini. Starfsfólk Origo gleðst yfir því að hefja samstarf við hina eiginlegu framvarðarsveit íslensks öryggis.
Hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg þarf rétta þjálfun, öflugar forvarnir og rétt viðbragð við hvers konar vá. Þetta á ekki síður við í hinum stafræna heimi. Ný og stafræn tækni hefur á undanförnum árum rutt sér til rúms í björgunaraðgerðum og þar nýtist þekking Origo afar vel í samstarfinu.

Afhjúpun neyðarskýlis tákn um viðbúnað
Til að heiðra samstarfið þá hefur Origo afhjúpað íslenskt neyðarskýli í höfuðstöðvum sínum í Borgartúni. Þetta er raunverulegt neyðarskýli sem var lengi notað á hálendi Íslands. Skýlið er sterkbyggt og öruggt og er ætlað að efla öryggisvitund. Fundarherbergi í höfuðstöðvum Origo mun einnig bera nafnið Landsbjörg héðan í frá.

Við erum stolt af því að fá að styðja við það göfuga starf sem Landsbjörg vinnur. Origo og Landsbjörg eiga það sameiginlegt að þurfa reglulega að leysa verkefni af ýmsum stærðum og gerðum og öryggi er alltaf í fyrirrúmi hjá báðum aðilum. Stundum eru krefjandi aðstæður og þá er þörf á nýsköpun og samvinnu. Samstarfið veitir okkur áminningu um mikilvægi öryggis í tækni og hugbúnaðargerð.
Jón Björnsson
•
Forstjóri Origo
Deila frétt