Áherslur
Stuðningur við nýsköpun í hugbúnaðar- og tækniþróun
Áherslur sjóðsins miða fyrst og fremst að því að styðja við nýsköpun í hugbúnaðar- og tækniþróun. Einnig er sjóðnum ætlað að styrkja viðskiptalega þætti tengda þróun á hugbúnaðarvörum eða tæknilausnum.

Markmið
Gera starfsfólki kleift að sækja sér fjölbreytta og alþjóðlega menntun í hæsta gæðaflokk
Markmið styrkveitinga úr menntasjóðnum Fremri er að stuðla að eflingu mannauðs hjá Origo með því að gera starfsfólki og framtíðar starfsfólki kleift að sækja sér fjölbreytta og alþjóðlega menntun í hæsta gæðaflokki. Til að ná slíkum markmiðum yrðu veittir styrkir úr sjóðnum til menntunar og geta þeir verið:
Styrkir til starfsmanna Origo og dótturfélaga til náms eða þekkingaröflunar á sviði nýsköpunar, þróunar hugbúnaðar- og tæknilausna, framtíðartækni og viðskiptaþróunar.
Námsstyrkur til að efla unga leiðtoga hjá Origo og dótturfélögum með það að markmiði að styrkja ungt fólk til leiðtogastarfa og breytingastjórnunar.
Einnig getur Origo átt frumkvæði að styrkúthlutun til valinna einstaklinga til að styrkja ákveðna hæfni eða þætti starfseminnar. Origo getur auk þess ákveðið að styrkja ákveðna nemendur eða framtíðarstarfsmenn Origo til að sækja framhaldsnám á háskólastigi.

Upphafið
Byggir á vegferð Tempo
Menntasjóðurinn Fremri varð til vegna söluhagnaðar sem Origo fékk frá sölu sinni á Tempo síðla árs 2022. Tempo sérhæfir sig í tímaskráningum í þróunartólinu JIRA og byrjaði sem hugmynd hjá starfsfólki Origo árið 2008.
Vegferð Tempo sýndi skýrt hvað öflugt starfsfólk, íslenskt hugvit og stuðningur getur búið til mikil verðmæti í hugbúnaði. Origo ætlar sér að halda áfram að leggja mikla áherslu á nýsköpun og hugbúnaðarþróun sem hluta af menningu og rekstri félagsins og er sjóðurinn enn ein stoðin sem sett hefur verið á laggirnar í þeirri von að fleiri hugbúnaðarvörur geti átt jafn farsælan feril og Tempo.
